Það er kannski ágætt að ritstjórn Fararheill er ekki með útvarps- eða sjónvarpsþátt. Við værum frussandi yfir dónaskap og óliðlegheitum flugfélagsins sem notar nafn landsins til að trekkja að og treður því í svaðið í hvert sinn sem fyrirtækið kemur illa fram við viðskiptavini sína. 

Ef Icelandair tekur kvartanir alvarlega hvers vegna dettur barnið þá í brunninn með reglulegu millibili?

Ef Icelandair tekur kvartanir alvarlega hvers vegna dettur barnið þá í brunninn með reglulegu millibili?

Við höfum síðan í morgun beðið þess sallaróleg að á vef Icelandair, twittersíðu Icelandair eða fésbókarsíðu Icelandair kæmi eins og ein einasta afsökun til handa þeim farþegum sem sátu fastir í Brussel þar sem vél fyrirtækisins bilaði. Farþegunum gert að sitja og bíða í 33 stundir!

Þrjátíu og þrjár stundir er hartnær einn og hálfur dagur gott fólk. Hjá stóru flugfélagi er þetta óafsakanlegt í meira lagi og samt stærir flugfélagið sig af því að „taka kvartanir alvarlega.“

Þetta hefur markaðsdeild Icelandair sagt um nokkurra ára skeið og rennur svo á rassinn aftur og aftur. Afsakanir á afsakanir ofan en aldrei lagað það sem aflaga fer.

Ekki þótti ástæða til að senda aðra vél eftir strandaglópum í Brussel að sögn farþega sem Mbl.is ræddi við. Nei, leyfum fólkinu bara að dúlla sér í Brussel lengur….

En það fylgir ekki fréttinni að flugfélagið á enga aukavél. Þeir keyra allar sínar vélar 24/7 svo nákvæmlega ekkert má út af bera. Nema að saga flugrekstrar sýnir aftur og aftur að hlutir fara úrskeiðis og það reglulega. Væri óeðlilegt að gera ráð fyrir slíku? Er það ekki kennt í rekstrarskólum? Það er jú ekki eins og flugfloti Icelandair sé af nýjustu gerð.

Í öllu falli eiga allir farþegar í þessari ferð rétt á fullum skaðabótum samkvæmt Evrópureglum. Það gæti aðeins létt brúnina á þeim sem biðu einn og hálfan dag eftir þjónustu.

icekvart

icekvart3

icekvart7