Vissir þú að þú kemst fram og aftur til Edinborgar rétt fyrir jólin fyrir 9.512 krónur? Vissir þú að þú kemst til Rómar fyrir 44 þúsund krónur fram og aftur í september?
Hvers vegna skyldum við nefna þessar tvær borgir sérstaklega? Jú, Edinborg er sallafín til jólaverslunar og þar finnst einhver allra mesta jólastemmning í Bretlandi. Róm er alltaf klassísk og extra plús að útsölurnar sem hefjast í ágúst endast margar vel fram í september.
En það er önnur ástæða fyrir að þessar koma til tals. Þær eru tvær af mörgum borgum þangað sem finna má allra lægstu fargjöld langt, langt fram í tímann með nýrri þjónustu Dohop.
Dohop Go heitir fyrirbærið og slóðin þangað finnst á vef Dohop. Flottur vefur og flott framsetning en aðalatriðið að þar má sjá á augnabliki hvenær hægt er að finna ódýrustu fargjöld út í heim. Það er aldeilis fínt ef fólk hefur ekki niðurnegldan brottfarartíma heldur er reiðubúið að grípa næstu feitu gæs.
Þó skal hafa í huga að hér er um lægstu verð sem finnast á vef Dohop. Þó þeir almennt standi sig vel er ekki þar með sagt að þeir bjóða ávallt allra lægstu verð. Á móti kemur að leit á eigin spýtur tekur drjúgan tíma og eins og mannfólk veit er tími okkar af skornum skammti.
Þá skal og hafa í huga að verðbreytingar eru mjög örar á Dohop Go eins og á öðrum flugleitarvélum og kannski óvitlaust að hafa kreditkortið við höndina sé fólki alvara með að bóka ferð um leið og hentugt fargjald finnst.








