Síðustu vikuna höfum við sagt ykkur frá sértilboðum hérlendis til Tyrklands. Tveggja vikna ferð Nazar niður í 80 þúsund og feitan afslátt Vita ferða á einni ferð. Bæði tilboð giltu um brottför með afar litlum fyrirvara. En þau tilboð fjúka út í hafsauga sé mið tekið af nýjasta Tyrklandstilboði Broadway Travel í Bretlandi.

Izmir á vesturströnd Tyrklands er líklega lítt kunnugur enda hingað aldrei ferðir frá Íslandi. Mynd Jose Alaman Asensi

Izmir á vesturströnd Tyrklands er líklega lítt kunnugur enda hingað aldrei ferðir frá Íslandi. Mynd Jose Alaman Asensi

Þar er um að ræða vikudvöl á tilteknum dagsetningum nú strax í júní eða júlí, september, október eða nóvember ef það hentar betur. Ekki gleyma að Wow Air er ennþá að bjóða flug til Englands næstu mánuðina fram og aftur kringum 20 þúsund krónur á mann. Miðaverð á pakka Broadway er algjört grín eða 57 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman.*

Þó verðið sé lágt er ekki dvalist í neinu krummaskuði. Fimm stjörnu spa hótel nálægt Izmir og þar allt innifalið. Grípi fólk flug með Wow til London og þaðan áfram kostar túrinn manninn einungis 77 þúsund krónur sé enginn farangur tekinn með. Það er sallafínt tilboð á glæsilegan stað en Izmir er ólíkt Antalya eða Bodrum á vesturströnd landsins. Fínustu golfvellir í grenndinni sem og þriðja stærsta borg landsins, Izmir sjálf.

Allt um málið hér.

* Miðað við miðgengi dagsins