Við hjá Fararheill erum svo skyni skroppin að halda að innlendar ferðaskrifstofur gerðu allavega minnstu tilraun til að bjóða landanum sæmileg eða góð ferðatilboð. Ekki ef marka má ferðaskrifstofuna GB ferðir.

Merkilega dýrt að ferðast með GB ferðum til Frankfurt á næstunni.

Merkilega dýrt að ferðast með GB ferðum til Frankfurt á næstunni.

Oft og ítrekað hefur Fararheill sett út á ruglverðlagningu þessarar ferðaskrifstofu og nánast undantekningarlaust finnum við sömu ferðir og sú er að bjóða á töluvert lægra verði með því að skipuleggja þær sjálf. Það á sannarlega við um nýtt „tilboð“ sem ferðaskrifstofan kynnir nú sem samanstendur af þriggja nátta ferðum til Frankfurt í Þýskalandi og gist þar á fínasta Hilton hóteli.

Ekki leiðinlegur túr. Frankfurt er reyndar ekki heimsins skemmtilegasta borg en töluvert um að vera og seinnihluta nóvembermánaðar fer að bera á jólastemmningu þar sem annars staðar í Þýskalandi. Lesa má allt um borgina í vegvísi Fararheill hér.

GB er að bjóða fjórar þriggja nátta helgarferðir til borgarinnar með gistingu og morgunverði á fimm stjörnu Hilton í miðborginni. Ekkert amalegt við það.

Það er hins vegar gert töluvert í brók þegar kemur að verðlagningu. 120 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman og reyndar fimm þúsund krónum betur í lokaferðinni í byrjun desember. Samtalan fyrir hjón eða par því 240 þúsund krónur alls.

Einföld leit á vef Icelandair leiðir í ljós að einstaklingur kemst fram og aftur með sama flugi og GB auglýsir sömu dagana fyrir 59.075 krónur á kjaft. Samtals 118.150 krónur. Tveggja sekúntna leit á hótelleitarvél Fararheill leiðir í ljós að á Hilton Frankfurt er hægt að gista með morgunverði í tveggja manna herbergi dagana 27. til 30. nóvember, sama dagsetning og GB býður, niður í 75.363 krónur. Heildarkostnaður á parið þannig alls 193.513 krónur.

Verðmunurinn á GB annars vegar og Fararheill hins vegar litlar 46.487 krónur!!!  Fyrir þriggja daga ferð…

Hér er ágætt að hafa í huga að Fararheill hefur enga sérstaka samninga við Icelandair né Hilton í Frankfurt. Það hefur hins vegar GB ferðir. Þar greiða menn ekki uppsett verð á flugi og varla heldur á hótelinu. Þeir ættu því að gera boðið þennan pakka á töluvert betra verði en við finnum. En það er svo langt frá því að undrum sætir. Aftur og aftur og aftur.