Flugfélagið Wow Air heldur áfram hraðferð sinni inn í lággjaldaheiminn góðu heilli og varla vika sem líður án þess að flugtilboð sem bragð er að finnist ekki á vef flugfélagsins ólíkt því sem áður var.
Nú skýtur flugfélagið fram tilboðum til Parísar og Kaupmannahafnar í nóvember og desember. Önnur leið með sköttum 10.889 til París og 8.899 til Kaupmannahafnar. Flugfélagið tilgreinir meira að segja fjölda sæta eins og Fararheill hefur ítrekað óskað eftir gegnum tíðina. Merkilegt hvað margar af okkur ábendingum hafa verið teknar upp hjá Skúla og félögum.
Þetta hljómar bara vel. Enginn setur fyrir sig tíkallinn til Parísar eða Köben og að komast svona rétt fyrir jólin þýðir aðeins að innlendir kaupmenn missa af fleiri seðlum í kassann í jólavertíðinni enda ekki samkeppnishæfir við verslun erlendis.
En einn er hængur á þó kannski lítill sé. Til Kaupmannahafnar kann að vera komist niður í níu þúsund krónur án farangurs en að komast til baka reynist allmiklu dýrara. Eins og sést á meðfylgjandi mynd er lítið spennandi að fara út á megatilboði aðeins til að punga svo út allt að þrefaldri þeirri upphæð til að komast heim aftur.
Þetta á reyndar helst við þegar nær dregur jólum enda þúsundir Íslendinga í Köben sem vilja heim á fornar slóðir yfir jólahátíðina. En til samanburðar er óhætt að kíkja á vef Icelandair en með þeim er hægt að komast til Köben og heim aftur þennan mánuð og aðeins inn í desember með 20 kíló af farangri, jólagjafirnar náttúrulega, niður í rúmar 30 þúsund krónur.
Með öðrum orðum; Icelandair er í sumum tilfellum alls ekki að bjóða verri pakka en Wow Air. Sérstaklega ekki þegar tillit er tekið til farangursheimildar.








