Ætli það sé ekki leitun að ferðamönnum sem láta sig hafa að grípa litla Pringles dollu á 900 kall eða volgan lítinn bjór á þúsund kall? Sem er svona tiltölulega algengt verð á vörum á miníbörum margra hótela. En það á eftir að breytast mikið ef marka má nýjustu þróun.

Frítt á barnum. Mynd Matthew Purdy
Á stöku betri hótelum vestanhafs hafa menn nú tekið upp á því að gefa gestum sínum það sem finnst á miníbörum í herbergjum. Framtakið vakið athygli á samfélagsmiðlum en ekki síður meðal hóteleigenda sem lengi hafa blótað að selja vörur úr miníbörum sínum. Það er nefninlega svo að jafnvel þó einhver peningur komi í kassann þá er sú upphæð rýr miðað við þann tíma og fyrirhöfn sem þarf að hafa fyrir. Daglega þarf að kanna hvort eitthvað vanti og oft neita gestir að hafa tekið nokkurn hlut. Eiga þarf töluverðan lager af þeim vörum er í boði er og ískáparnir kosta sitt í rekstri líka.
Í ofanálag hafa margítrekaðar kannanir sýnt að hótelgestum finnst óspennandi að greiða mörg hundruð prósenta álagningu sem á vörur á slíkum börum er.
Þetta veldur sem sagt árekstrum við suma gesti. Herbergi og þjónusta getur verið hundrað prósent góð en bara okuverðið á hnetupoka á miníbarnum getur valdið því að gestir gefa hóteli lélegri einkunn en ella. Fátt þola hóteleigendur verr en lélegar einkunnir.
Þessu er nú snúið við hjá fleiri og fleiri hótelum sem bjóða allt sem á miníbörum frítt. Einhverjir hundrað kallar bætast væntanlega við gistikostnaðinn á móti en sá kostnaður engin ósköp og allir gestir sáttir enda alltaf gott að fá eitthvað „ókeypis.“ Þá hafa rannsóknir sýnt fram á að sé fólk mjög ánægt með tiltekna dvöl og finnist ekki verið að okra á sér fer það síður út úr hótelinu til að fá sér í gogginn svo eittdæmi sé tekið. Það getur því verið að hótelið fái kostnaðinn alfarið til baka og gott betur og líklega betri einkunnir á samfélagsmiðlum líka.







