Eins og hægt er að lesa um í vegvísi okkar um borgina Birmingham í Bretlandi er sú tiltölulega innantóm og ljót á breskan mælikvarða. En það er ekki það sem sjokkerar mest.

Nokkuð algeng sjón í miðborg Birmingham og ágætt að skýra út málið fyrir börnum og ungmennum ef þau með í för. Mynd CatholicMedia

Nokkuð algeng sjón í miðborg Birmingham og ágætt að skýra út málið fyrir börnum og ungmennum ef þau með í för. Mynd CatholicMedia

Enginn gengur mikið um miðborg Birmingham án þess að berja augum heimilislaust fólk en fjöldi fólks í borginni sem þannig er ástatt um er talið vera um 20 þúsund talsins.

Fyrir ferðavana er heimilislaust fólk ekki óalgeng sjón. Slíkt finnst í mismunandi mæli í velflestum borgum heims. En það er fátt sem eyðileggur göngutúr auðveldar en rekast ítrekað á fólk sem á um sárt að binda með þessum hætti.

Þó fjöldi heimilislausra sé víða meiri en í Birmingham þá er það einhvern veginn svo að þeir virðast um allt hér. Slík sjón getur verið mjög sjokkerandi fyrir íslenskt smáfólk sem ekki á slíku að venjast.