Engum vafa er undirorpið að með því að birta annars lagið umsagnir viðskiptavina Wow Air á vef Fararheill undanfarin misseri höfum við fjölgað störfum í þjónustuveri Wow Air um þrjú eða fjögur. En það bara hvergi nærri nóg.

Bætt þjónusta en fjarri því góð. Mynd Caribb

Þegar við hér hófum að benda á skýr dæmi af Twitter um hörmungarþjónustu Skúla Mogensens og flugfélag hans hér fyrir þremur mánuðum síðan fannst ekki eitt einasta svar við neinu frá flugfélaginu. Það skyndilega færðist til batnaðar í kjölfar umfjöllunar okkar. Jákvætt vissulega en hvergi nærri nóg miðað við afglöp Wow Air.

Eða hversu lengi þarf að þjösnast á viðskiptavini áður en viðkomandi segist frekar vilja fá krabbamein eða eiga viðskipti við Wow Air?

Nú eru Íslendingar svona almennt mjög latir á samfélagsvefnum Twitter. Þeir kjósa fremur Facebook til tjáningar. Það gott og blessað en það líklega ástæða þess að Wow Air lokar alfarið fyrir öll komment á þjónustu á fésbókarvef sínum. Ella værum við líklega að birta reglulega sams konar skeyti frá Íslendingum…