R itstjórn rak upp nokkur augu þegar gluggað var í nýlegt hefti tímarits Wow Air, Wow magazine, en þar er fullyrt að nánast sé hvergi á byggðu bóli betra að versla en í Kaupmannahöfn.

Séð yfir hluta Vesterbro í Kaupmannahöfn. Hér er víða að finna hinar skemmtilegustu verslanir. Mynd @boetter

Séð yfir hluta Vesterbro í Kaupmannahöfn. Hér er víða að finna hinar skemmtilegustu verslanir. Mynd @boetter

Greinarhöfundar vitna reyndar ekki í neitt þessu til staðfestingar en þetta skýtur skökku við aðallega vegna þess að Kaupmannahöfn er einhver allra dýrasta borg heims og hefur verið lengi. Sú áttunda dýrasta heimsóknar samkvæmt nýlegri könnun Economist Intelligence Unit.

Stimpillinn „besta“ hlýtur að þurfa að taka tillit til kaupmáttar þeirra sem verið er að höfða til. Steininn tók þó úr þegar Wow magazine mælti með Strikinu og nágrannagötum sem allra bestu stöðum fyrir verslunarglaða!!!

Strikið er fokdýrt eins og Oxford stræti í London og fjarri því hagkvæmasti staðurinn til innkaupa þó vissulega sé hvað mesta úrvalið á þeim slóðum. Hið rétta er hins vegar að bestu kaupin í Kaupmannahöfn þessa dagana eru gerð í Nørrebro og Vesterbro og nægir að stoppa næsta heimamann til að fá staðfestingu á því. Verðlag gróflega séð er 20 til 40 prósentum lægra í verslunum þar en við Strikið.

Sex fataverslanir sem þykja bæði bjóða fínustu vörur og á fínasta verði í Kaupmannahöfn og njóta vaxandi vinsælda eru til dæmis MONKI við Frederiksbjerggade, HIDDEN TREE í Blågårdsgade, GREIBE & KUMARI við Nordre Frihavnsvej, MOSS COPENHAGEN við Vesterbrogade, GINA TRICOT í Købmagergade og RUDE í Istedgade.

En kannski eru einhverjir þarna úti sem ekki eru með á hreinu hvað tilheyrir Vesterbro og Nørrebro. Þá er bara að kíkja á kortið okkar hér að neðan. Ekki fullkomið en gróflega rétt.


Sjá Vesterbro og Norrebro í Kaupmannahöfn á stærra korti