Græðgin fer með marga í gröfina og eftirsjáin er engin. Forsvarsmenn Kynnisferða, Flybus, í þeim hópi. Fyrirtækið heimtar nú tæpar þrjú þúsund krónur fyrir rútuskutl frá Reykjavík til Leifsstöðvar en það er 35 prósent hækkun á fargjaldi á augabragði. Samkeppnisaðilinn Grey Line hins vegar býður sama túr á 2400 krónur.

Allmikið dýrari með þessum bílum til og frá Leifsstöð en með helsta samkeppnisaðilanum. Mynd Kynnisferðir

Frændsystkini Bjarna Benediktssonar, forsætisráðherra, eru spennt þessi dægrin. Eitt helsta fyrirtæki fjölskyldunnar var að hækka fargjöld sín um 35 prósent í einu vetfangi. Sem merkir að Kynnisferðir, Flybus, skilar familíunni líklega góðum arði á yfirstandandi ári.

Það kostar nú 2.950 krónur fyrir einstakling að fá að fljóta með flugrútu til Leifsstöðvar eða frá Leifsstöð að BSÍ. Það kann að hljóma eðlilegt fyrir 45 mínútna rúnt með nútímalegri rútu nema kannski ef mið er tekið af tveimur staðreyndum. Annars vegar að Kynnisferðir seldu þar til nýlega sama rúntinn á 2.300 krónur per kjaft og hins vegar vegna þess að helsti samkeppnisaðilinn á þessari leið, Grey Line, býður enn sama skutl fyrir 2.400 krónur eða fyrir rúmlega 20 prósent lægra verð en ættingjar fjármálaráðherra.

Það átakanlegur verðmunur á einföldu 45 mínútna skutli ekki satt? Bjarni og familían alltaf að græða 🙂