
Ferðahugur? Þá er óvitlaust að skoða afsláttarfargjöld Wizz Air þennan daginn.
Jebbs, þú last þetta rétt. Tólf kúlur á kjaft fyrir sæti með Wizz Air á ýmsum dagsetningum svo lengi sem þú kaupir miðann í dag og ferðist fyrir lok október.
Dæmi um slíkt fargjald má sjá hér neðar en afsláttarkjörin ekki einskorðuð við Napólí heldur gilda til allra áfangastaða Wizz Air af klakanum. Staða á borð við Mílanó, Ríga, Vínarborg, Dortmund, Búdapest að ógleymdri London og fjölmörgum stöðum í Póllandi og er þá listinn ekki tæmdur eins og sjá má hér. 
En að okkar viti skýtur Napólí öllum öðrum ref fyrir rass þó ekki sé nema vegna þess að meðalhitastig í þessari ágætu ítölsku borg í október eru sallafínar 18 gráður. Og hver þarf ekki framlengingu á sumrinu á klakanum?
Ekki heldur er mínus að rellur Wizz Air eru undantekningarlítið nýjar eða nýlegar og af því leiðir að kolefnisfótsporið vegna ferðalagsins verður töluvert lægra en ella. Það skiptir vitaskuld líka máli á þessum síðustu og verstu ekki satt?







