Við hér höfum það fyrir venju að skilja eftir sæmilegt þjórfé fyrir hótelstarfsfólk ef þjónustan er góð eða betri en aldrei annars. En það er dálítið blaut tuska í andlit að vita að vellauðugir forstjórar stórfyrirtækja láta sér fátt um staffið á gólfinu finnast og skilja ALDREI eftir þjórfé.

Víða í heiminum er þjórfé stór hluti launa starfsfólks í ferðamannageiranum. Þess vegna súper-eðlilegt að vellauðugur forstjóri Hilton gefi ALDREI þjórfé.
Töluverða athygli hefur vakið erlendis að milljarðamæringurinn og forstjóri Hilton hótelanna á heimsvísu gefur aldrei nokkurn tímann þjórfé þegar hann gistir á hótelum sínum. Það extra merkilegt þegar haft er hugfast að vestanhafs getur þjórfé numið 80 prósentum allra launa starfsfólks á hótelum eins og raunin er líka á veitingastöðum. Og hér einstaklingur sem var með 2,4 milljarða króna í tekjur á síðasta ári meðan meðaltímalaun herbergisstarfsmanna Hilton á heimsvísu voru tæpar 1400 krónur.
Með öðrum orðum; milljarðamæringur sem sannarlega hefur efni á að gefa extra án þess að blikka auga hefur greinilega ímugust á skítaplebbunum á gólfinu.
Speaking at the 41st annual NYU International Hospitality Industry Investment Conference last week, Hilton’s CEO, Christopher Nassetta says he doesn’t tip housekeepers.
„I typically do not leave a tip,“ Nassetta, who reportedly earned $19.8 million in 2018, said in response to a question from host Andrew Ross Sorkin about how much he normally leaves in a hotel as a gratuity.
Smekklegt ekki satt? Ef forstjóri Hilton-samsteypunnar gefur skít í starfsfólk á hótelum hvers vegna í ósköpunum eigum við láglaunafólk að henda seðlum á glæ? Ekki hvað síst þegar haft er í huga að allmargir starfsmenn Hilton-hótela á heimsvísu hafa kvartað við yfirvöld vegna þess að yfirmenn hirða á köflum mestallt þjórfé sem gestir skilja eftir og fólkið á gólfinu fær ekki aur.
Þjóðráð að gefa Hilton og hans fólki frí og beina viðskiptum okkar allt annað…







