Meðan íslensk stjórnvöld eru með kaktus í rassi að hugsa um hvernig eigi að taka móti ferðafólki vandræðalaust taka Kýpurbúar sig til og hugsa í lausnum. Lausnin einfaldari og sennilega ódýrari en nokkurn grunar.

Ferðafólk á Kýpur getur andað verulega rólega
Kýpur hefur, eins og margir aðrir staðir við Miðjarðarhafið, þegar opnað sig og sína fyrir ferðamönnum þó enn geysi töluvert alvarlegur faraldur á heimsvísu.
Deila má um hversu sniðugt það er en óumdeilt má vera hvernig Kýpur ætlar að dekka málið. Stjórnvöld ætla að endurgreiða allt fríið þitt frá A til Ö ef þú veikist af kóróna meðan á dvöl stendur!!!
Ekkert lítið gott tilboð frá lítilli eyju. Komdu endilega og njóttu og ef veikinda verður vart verður þér veitt ókeypis heilbrigðisþjónustu, þér flogið heim á leið hið snarasta og færð allt fríið endurgreitt fram að því.
Og hvers vegna gáfulegt kann einhver að spyrja í miðjum faraldri? Jú, það eru fáir eða engir lasnir eða orkulausir einstaklingar að fara að dúlla sér í sólarferð sísona. Eða hversu gaman er á sólarströnd ef þú ert bara í rúminu með hita og verki. Ekkert meira spennandi en hanga heima í Bíldudal







