Tíðindi

Forfallatilboð Heimsferða til Kanaríeyja

  19/12/2009maí 17th, 2014No Comments

Tvö sæti eru nú til sölu vegna forfalla hjá ferðaskrifstofunni Heimsferðum til Kanaríeyja. Fyrirvarinn kannski helst til lítill en farið er af stað seinnipartinn í dag.

Ekki verður heldur séð að umtalsverður afsláttur sé veittur af hálfu ferðaskrifstofunnar enda engin forföll koma svo seint nema Heimsferðir haldi eftir 80 prósentum þess sem greitt hefur verið af hálfu þeirra sem forfallast.

109 þúsund krónur er lágmarksverð í forfallaferðina í tvær vikur sem gerir litlar 216 þúsundir fyrir hjón eða par. Nema það er ekkert í boði heldur miðast tilboðið við fjóra.

Tilboðið:

Frá kr. 109.900 – jólaferð (aðeins 2 sæti laus)
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð á Green Park Apartments í 14 nætur. Verð m.v. 2 í íbúð á Green Park kr. 134.900. Sértilboð 19. des.