Tíðindi

Fólk í lífshættu með Iceland Express

  13/06/2011desember 4th, 2014No Comments

Óttast var á tímabili um stóran hóp sykursjúkra barna og unglinga sem voru á leið í sumarbúðir í Gautaborg með flugfélaginu Iceland Express.

Tafir urðu á brottför héðan og sömuleiðis umtalsverðar tafir í Osló í Noregi þegar millilent var þar en í þann mund sem farþegum var tilkynnt um brottför á nýjan leik síðdegis í dag kom í ljós að þota flugfélagsins var biluð.

Bíður fólk enn á flugvellinum en afráðið hefur verið að flytja fólk til Gautaborgar með rútum. Allan þennan tíma hafa farþegar hvorki fengið vott né þurrt. Er rútunnar ennþá beðið þegar þetta er skrifað (20:02).

Ekki aðeins var um tíma óttast um líðan þeirra sykursjúku barna sem í vélinni voru heldur og voru um borð þrjú ungabörn og fengu foreldrar þeirra hvorki aðstoð né komust í neina aðstöðu meira eða minna í allan dag.  Hvergi fannst fulltrúi flugfélagsins til aðstoðar þegar á reyndi.

Voru farþegar læstir inni í um þrjár klukkustundir í sérstökum sal eftir að bilun kom upp við millilendingu í Osló en meirihluti farþega sem far keyptu til Gautaborgar fengu ekki að vita um millilendinguna í Noregi fyrr en tveimur dögum fyrir brottför. Átti stoppið í Noregi að vera ein klukkustund en þegar þetta er skrifað hafa farþegarnir beðið á vellinum síðan um hádegi.

Virðist sem Iceland Express eigi engar vélar aflögu ef ein bilar og því hefur verið brugðið á það ráð að selflytja farþegana til Gautaborgar með rútum. Eins og áður sagði var tilkynnt um þetta þegar farþegar voru í flugvallarútu að vélinni um sex leytið í dag en þá hafði þeim verið tilkynnt að búa sig til brottfarar og tékka inn farangur á nýjan leik. Reyndist það svo orðin tóm og rútunni snúið við að flugstöðvarbygginguni á nýjan leik.

Rútuferðin til Gautaborgar mun taka þrjár klukkustundir hið minnsta. Gangi það eftir hefur ferðalagið til sænsku borgarinnar, sem allajafna tekur rúmar þrjár klukkustundir, tekið 16 tíma.