Enginn vafi leikur á að Skúli Mogensen er sneddí og sniðugur gaur. En annaðhvort er hann algjörlega úti á þekju hvað varðar sjálfsagða þjónustu eða er slétt sama svo lengi sem seðlar rúlla inn á bankabókina.

Það er orðið æði dapurt þegar flugfélögin spara á því að eiga ekkert til að bjóða farþegum um borð.

Viti bornir lesendur Fararheill vita sem er að Skúli grípur hvert tækifæri til að taka peninga af viðskiptavinum en eyðir sirkabát núll krónum í þjónustu við sömu viðskiptavini. Dæmin mörg: Indverjar í þjónustuverinu, blekkingar í verðlagningu, engin þjónusta kvöld og helgar, lokað á ummæli viðskiptavina á samfélagsmiðlum, vikur og jafnvel mánuði tekur að afgreiða kvartanir, sífellt dregið úr farangursheimildum farþega og það allra nýjasta er að taka hvorki mat né drykk með um borð ef ske kynni að farþegar finndu til hungurs eða þorsta.

Sorrí Stína hvað þetta er ömurleg framganga hjá annars frambærilegum manni og flugfélagi hans. Við erum að tala um að hvorki var vott né þurrt að fá um borð í vél Wow Air í rúmlega sex stunda flugi frá Las Palmas fyrr í vikunni. Ekkert kaffi, engin mjólk, engin matur og alls ekki neitt í boði nema gull og gersemar úr sölubæklingi Wow Air. Ástæðan sögð vera sú að farþegar á útleið til Las Palmas hafi verið svo gráðugir að allt vott og þurrt um borð hafi klárast!!!

Og Davíð Oddsson verður næsti einstaklingurinn til að hljóta friðarverðlaun Nóbels…

Gefum okkur eitt augnablik að satt sé að farþegar á útleið hafi klárað allt vott og þurrt um borð og áhöfnin hefði áhyggjur af því að eiga ekkert til að bjóða farþegum á heimleið hefði einhver flugliði átt að vita að flugeldhús eru starfrækt í öllum flugstöðvum heims. Þar geta flugfélög keypt mat og drykki með litlum fyrirvara. Góður yfirflugþjónn hefði líka getað skottast inn í næstu verslun í flugstöðinni og pungað út fyrir 30 samlokum og 50 gosdósum ef þjónustulundin hefði verið einhver. En nei. Ekkert svoleis. Bara öxlum yppt og ekkert hægt að bjóða. Ekki einu sinni vatn. Það er rosa Wow.

Hvað Fararheill varðar kaupum við ekki skýringar flugþjóna Wow Air að farþegar á útleið hafi étið og drukkið allt út á gaddinn. Nærtækari skýring er að Skúli og félagar eru að spara enn meira eldsneyti með því að taka algjöran lágmarksskammt af mat og drykk með um borð.

Það kann að hljóma mótsagnakennt. Það er jú auðvelt að græða seðla þegar skitin samloka kostar 1200 kall og kókdósin 400 krónur. Þú ert jú ekkert að fara að versla annars staðar. En sá gróði er hjóm eitt því matur og drykkur er þungur og þyngsli auka eldsneytiskostnað vélarinnar. Þess vegna borgar þú fimm þúsund krónur aukalega fyrir að taka með þér lítið veski með um borð. Hagnaðurinn af því að létta vélina skiptir tugþúsundum króna að minnsta kosti á sex stunda flugi meðan hagnaður af sölu af salati og vatni rétt dekkar kostnað vegna aukinna þyngsla.

Nú erum við nokkru nær um hvernig milljarðamæringar verða milljarðamæringar ekki satt 🙂