Íslensku flugfélögin hafa verið graðari síðustu misserin en kaþólskur prestur á leikskólalóð. Sem kannski er ágætt fyrir íslenskt þjóðfélag og kannski ekki. Verra þó þegar fyrirtækin eru svo blinduð af græðgi að eftirá-þjónusta er lítil sem engin.

Gamlar en flottar vélar en þjónusta aftan úr forneskju.
Vart hefur farið framhjá lifandi sálu með vit í kolli að Icelandair og Wow Air moka inn seðlum hraðar en fámáll maður getur sagt heibabbílúlla. Það án þess að hafa staf fyrir því stórkostlega Ísland, eins og Fararheill hefur haldið fram um átta ára skeið, selur sig sjálft og þarf enga aðstoð frá misvitru markaðsfólki.
Gott og blessað að selja flug og meðlæti eins og lummur en öllu ömurlegra að láta hjá líða að aðstoða þá sem einhverra hluta vegna þurfa á aðstoð að halda eftir að kaup eru gerð. Bæði Wow Air og Icelandair, og reyndar fjöldi annarra erlendra flugfélaga, eru sek um að sýna fálæti gagnvart viðskiptavinum eftir að peningar eru komnir inn á bók.
Athygli vakti fyrir skömmu þegar Skúli Mogensen, milljarðamæringur, gerði samning við indverskt símaver um að taka mót kvörtunum og veseni hjá Wow Air. Aldrei kom til mála að ráða íslenska aðila til að dekka þann hluta enda Íslendingar heimtufrekir á laun og vilja sumarfrí, fæðingarorlof, frítt kaffi og fullt af rándýru stöffi. Neibb. Best að henda nokkrum seðlum í hræódýra Indverja til að laga ástandið. Það þýðir fleiri seðla í vasa eigandans.
Icelandair sömuleiðis á í vandræðum. Fyrirtækið eyddi svo miklum fjárhæðum í að plögga að það væri flugfélag íslenska landsliðsins í knattspyrnu og í forstjórann, sem valsar nú um borg með fálkaorðuna sína eins og jörðinni verði grandað á morgun, að enginn seðill er eftir fyrir þjónustu. Sem útskýrir hvers vegna viðskiptavinir fá engin svör þótt þeir hringi í þjónustuver Icelandair í þremur mismunandi löndum:
Hversu ömurlegt er það að fá lítið skeyti einn góðan veðurdag þess efnis að flug sem er bókað og borgað hafi verið fellt niður sísona og sá sem fyrir verður fær engin einustu svör hvers vegna neins staðar?
Skömm sé Icelandair fyrir að koma fram við fólk eins og fífl og fávita en þó aðeins þangað til búið er að borga farmiðann. Fram að því er tonn af fólki reiðubúið að aðstoða, sýna lit og sleikja rass.
Kominn tími til að Icelandair endurgreiði ríkinu þá milljarða sem fyrirtækið fékk til að koma sér á framfæri erlendis þegar enginn vildi fljúga með þeim hér fyrir nokkrum árum.







