Umboðsmaður neytenda í Noregi fer hörðum orðum um mörg evrópsk flugfélög, þar á meðal íslensku flugfélögin, í nýrri skýrslu þar sem hann fullyrðir að gjöld þau er við fargjöld bætast við bókun séu ekkert annað en rekstrargjöld en ekki bensín- eða þjónustuskattar eins og félögin halda gjarnan fram.
Telur Umboðsmaðurinn engan vafa leika á að félögin séu visvitandi að villa um fyrir viðskiptavinum enda vita allir það sem bókað hafa flug gegnum net að fargjald það sem auglýst er reynist oftast mun hærra þegar upp er staðið eftir að gjöld og skattar hafa bæst við. Nú vill sá norski meina að gjöldin séu aðeins rekstrarkostnaður sem flugfélögin eiga að greiða úr eigin vasa en feli það bakvið gjöld á borð við bensíngjöld.
Bæði Iceland Express og Icelandair voru í hópi flugfélaga sem rannsökuð voru og Neytendastofa hér á landi var þátttakandi í verkefninu.
Skýrslan öll á pdf-skjali hér.






