Tíðindi

Sjö evrópsk flugfélög sektuð

  31/08/2009maí 11th, 2014No Comments

Umboðsmaður neytenda í Danmörku hefur í samvinnu við neytendeftirlit Evrópusambandsins sektað sjö evrópskt flugfélög fyrir að leyna aukagjöldum og sköttum fyrir viðskiptavinum á dönskum heimasíðum sínum.

Ryanair, AirBerlin, Air Baltic, SkyEurope, Air Lingus, Brussels Airlines og Seat 24 voru sek fundin um að kasta ryki í augu þeirra sem hugðust bóka ferð með þeim.

Var fundið að því að það verð sem auglýst var á forsíðu hvers og eins félags stóðst ekki þegar ferð var endanlega bókuð þar sem fjöldi aukagjalda bættist þá við upphaflega auglýst verð. Fengu flugfélögin áminningu og er gert að breyta vefjum sínum og auglýsa rétt verð.