Glaðst geta nú allir þeir sem orðnir eru þreyttir að bíða lon og don eftir flugvélum sem seinkað hefur og ekki fengið svo mikið sem afsökunarbeiðni fyrir en slíkt er afar algengt ekki síst hjá Iceland Express.
Hefur Evrópudómstóllinn í Lúxemborg kveðið upp fordæmisgefandi dóm sem merkir að nú má vél ekki seinka um meira en þrjár klukkustundir án þess að flugfélagið verði að endurgreiða ferðina að öllu leyti.
Hingað til hafa reglurnar verið að seinki flugi skemur en fimm klukkustundir á hver farþegi rétt á máltíð, símtali og hótelgistingu ef svo hittir á á kostnað flugrekandans. Seinkun umfram fimm klukkustundir þýðir fulla endurgreiðslu eins og flugið hefði fallið niður.
Nú bætir dómstóllinn um betur. Þriggja klukkustunda seinkun samsvarar því að fluginu hafi verið aflýst og full endurgreiðsla skal eiga sér stað. Bætur skulu þeir fá hvers flug er aflýst jafnvel þó flugfélagið útvegi annað flug á áfangastað í staðinn. Það sem meira er; flugfélög geta ekki lengur sagt tæknilega bilum sem ástæðu tafar heldur er aðeins litið til aðstæðna sem alls ómögulegt var fyrir flugfélagið að stjórna.
Dómurinn hér í heild sinni.






