Ferðaskrifstofan Heimsferðir hefur sett síðustu flugferðir sínar til Barcelóna á Spáni þetta haustið á útsölu. Ferðaþyrstir komast nú út eða heim fyrir 14.900 krónur með tösku í för.

Ljúf og góð er Barcelona og nú komist þangað á fínu tilboðsverði.

Ljúf og góð er Barcelona og nú komist þangað á fínu tilboðsverði.

Fantagott tilboð hjá ferðaskrifstofunni jafnvel þó aðeins sé um að ræða örfáar brottfarir út september og nýtist því aðeins þeim er brott komast með litlum fyrirvara. Engu að síður er þetta næstum 50% lægra verð en lægsta verð sem finnst á vef Wow Air í september þegar þetta er skrifað sem er tæp 23 þúsund aðra leið án farangurs.

Eins og sjá má á vegvísi okkar til borgarinnar er kjörhitastig þar um slóðir í september. Að minnsta kosti fyrir marga Íslendinga sem ekki vilja sjá meiri hita en 25 stigin eða svo.

Svo er ekki úr vegi að kíkja á hótelbókunarvél okkar í leiðinni. Þó september sé enn annatími í Barcelóna er ferðafólki aðeins að fækka og það birtist um leið í aðeins lægra verði á gistingu.