Tíðindi

Flestar kvartanir vegna niðurfellingar flugs

  10/08/2010júní 1st, 2014No Comments

Alls komu 20 formlega kvartanir inn á borð Flugmálastjórnar árið 2009 vegna þess að farþegum þótti gert á sinn hlut samkvæmt ársskýrslu stofnunarinnar.

Tólf þessara kvartana voru vegna aflýsingar flugs, kvartanir vegna seinkana tvær og þrjár vegna þess að viðkomandi var meinað að stíga um borð. Þrjá kvartanir voru af öðrum toga.

Flugmálastjórn sér um að gæta rétta flugfarþega með íslenskum flugförum og sé fólk í vafa um rétt sinn má sjá allar reglur sem um slíkt gilda á heimasíðu Flugmálastjórnar hér. Eru þær margvíslegar en Fararheill.is hvetur fólk til að prenta þær út og kynna sér í þaula því þær eru víðtækar mjög og oftar en ekki eiga farþegar ýmsan rétt sem flugfélögin eru lítið fyrir að auglýsa.