Tíðindi

Fjölgun áfangastaða næsta sumar

  10/08/2010júní 1st, 2014No Comments

Betri tíð er framundan fyrir ævintýragjarna Íslendinga á næsta ári en bæði Icelandair og Iceland Express hyggjast fjölga áfangastöðum sínum. Að auki ætlar bandaríska flugfélagið Delta að hefja áætlunarflug hingað til lands frá New York.

Þetta þýðir meiri samkeppni og meira úrval fyrir landsmenn og ber að fagna.

Iceland Express hyggst fjölga ferðum til New York og fljúga þangað allt árið. Þá bætast Stokkhólmur og Glasgow við leiðakerfi félagsins frá næsta vori auk áætlunarferða til Boston og Chicago.

Icelandair fjölgar sínum áfangstöðum úr sjö í níu en við bætast borgirnar Billund og Gautaborg.

Delta til Íslands

Þá eru það talsverð tíðindi að bandaríska flugfélagið Delta Airlines hyggst hefja áætlunarflug hingað næsta sumar. Aldrei fyrr hefur stórt bandarískt flugfélag gert slíkt en í ljós á eftir að koma hvort fargjöld Delta verða hagstæð fyrir Íslendinga en flugfélagið einbeitir sér að færa Bandaríkjamenn hingað.