Sjöundi september ár hvert er alla jafna sérstaklega forvitnilegur í borginni Flórens á Ítalíu. Þá er haldin hátíðleg svokölluð Rificolona sem þýðir uppljómaðar götur um alla borg enda labba þá velflest börn og ungmenni um borgina með heimatilbúna og vel skreytta lampa sína.
Aukinheldur eru götuveislur víða um borgina og kardínáli borgarinnar leiðir göngu frá Piazza Santa Croce að Piazza Santissima Anunziata fram á rauðan morgunn. Þá hafa verslanir margar hverjar opið fram á nótt einnig. Sérstök en forvitnileg hátíð í skemmtilegri borg.
Hátíðin á rætur að rekja til fornra tíma þegar bændur sem komu með vörur sínar á markaðinn í borginni héldu til síns heima eftir að kvölda tók en þeir höfðu þá með sér lampa til að lýsa leiðina.




