Samkvæmt dagblaðinu Vanguardia sem gefið er út í Katalóníu hyggjast borgaryfirvöld í Barcelona skera upp herör gegn nekt á almannafæri en undir nekt á þeim bænum fellur til dæmis að vera ber að ofan.
Hefur verið deilt um þetta lengu hjá borgarráði Barcelona en ýmsir borgarráðsmenn telja það lýti á sumrin hversu margir ferðamenn sérstaklega spássera um berir að ofan eins og ekkert sé sjálfsagðara.
Aðrir hafa bent á að ekkert sé sjálfsagðara víðast hvar annars staðar í landinu og einnig að hitastig í borginni yfir sumartímann sé það hátt að eðlilegt sé að fólk fækki fötum.
Segir dagblaðið að ákvörðun um þetta verði tekin fljótlega og að meiri líkur en minni séu á að nekt umfram stutt pils og stuttermaboli verði bönnuð á götum borgarinnar.








