Brrrr. Snjóþekja farin að skreyta fjallstoppa og hálendið. Haustlægðirnar að sunnan að breytast í vetrarlægðir að norðan. Drepleiðinleg umferðarteppa alla morgna á leið til vinnu og yfirmaðurinn hafnar því alfarið að veita þér launahækkun.

Enginn kafaldsbylur hér né á öðrum þeim stöðum sem í boði eru þennan veturinn í pakkaferðum.
Ýmsar leiðir færar til að færa birtu og yl inn í skammdegispakkann og eða drepa niður skammdegisþunglyndi sem samkvæmt könnunum hrjáir töluverðan fjölda landsmanna. Engin þeirra jafnast þó á við að smella sér út í víking og lenda í smá ævintýrum án þess að þurfa að klæðast þykkum útivistarfatnaði. Hér eru fjórar af þeim ferðum innlendra aðila sem ritstjórn Fararheill slefar helst yfir þessa dagana.
TANZANÍA með TransAtlantic
Safarí, miðbaugur, fararstjórn á íslensku. Þetta þrennt er í boði í ljúfri tveggja vikna ferð ferðaskrifstofunnar Trans-Atlantic til Tanzaníu seinni hluta janúarmánaðar. Safarí er eitthvað sem allir lifandi menn verða að upplifa. Ekki síst þegar tillit er tekið til þess að næstu kynslóð mun líklega ekki gefast tækifæri til slíkra ferða enda verið að veiða dýr í Afríku sem aldrei fyrr og fjöldi tegunda í útrýmingarhættu. Miðbaugur er vitaskuld ávísun á hita og svita og jafnvel þó hitinn sé yfirgnæfandi á köflum er það betra en skjálfa úr kulda við að skafa af bílnum heimavið. Síðast en ekki síst er Íslendingur að leiða hópinn. Íslendingur sem býr í Tanzaníu og þekkir vel til. Flottur pakki sem lesa má um hér.
INDLAND með Bjarmalandi
Páskaferð ferðaskrifstofunnar Bjarmaland að þessu sinni er dálaglegur fjórtán daga túr um Indland þar sem tíma er eytt á tíu stöðum á leiðinni og þar af gefst færi á að njóta sólbaða við ströndina um tíma. Forvitnilegur rúntur og dálítið utan þessara hefðbundnu Indlandsferða sem oft samanstendur eingöngu af hinum svokallaða gullna þríhyrningi (Delhi, Jaipur og Agra). Sá túr líka hér en fjölmargir aðrir staðir að auki. Sem er jákvætt fyrir hugsandi fólk og forvitið. Nánar hér.
TÆLAND með Oríental
Sé þolinmæði eftir hita og sól af skornum skammti er óhætt og ljúft að smella sér með Oríental í tveggja vikna ferð til Tælands í nóvember. Þar fæst það besta bæði fyrir verslunarglaða sem komast í feitt (og mjög ódýrt) í Bangkok nokkra daga áður en haldið er til Krabi þar sem ströndin er guðdómleg og jafnvel stressaðasta fólk kemst niður á jörðina á skömmum tíma með tilheyrandi jákvæðum afleiðingum fyrir heilsuna. Allt um þann pakka hér.
HAWAII með Bændaferðum
Nákvæmlega ekkert er hægt að setja út á loftslag á Hawaii-eyjum. Þar hiti alla daga ársins og sól oftast nær með. Bændaferðir bjóða fínan pakka þangað á versta tíma. Það er að segja versta tíma hér heima í lok janúar og byrjun febrúar þegar válynd veður eru reglan en ekki undantekning. Maui er áfangastaðurinn hér og þar ekki hangið á hóteli frekar en fólk vill heldur allnokkrir túrar með leiðsögn í pakkanum og á íslensku. Allt um það hér.
[alert type=secondary]Þá er sáraeinfalt að setja saman eigin pakka ef fólk þorir að flakka um á eigin vegum. Við aðstoðum við slíkt ef óskað er eftir[/alert]






