Ný hraðtilboð Icelandair sáu dagsins ljós þennan daginn og þar um nokkuð að velja á lægra verði en almennt gerist. Fátt óvænt þar. Hið óvænta hins vegar að Wow Air grípur nú sama kefli og býður sitt eigið sólarhringstilboð.
Óljóst er hvers vegna sólarhringstilboðin þykja svona móðins hérlendis. Kannski er landinn bráðlátur með afbrigðum. Erlendis er ekki hefð fyrir neinum sólarhringstilboðum, hvorki hjá hefðbundnum flugfélögum né lággjaldaflugfélögum. Tilboð almennt gilda í nokkra daga eða þangað til tiltekinn sætafjöldi á tilboðsverði selst upp til agna.
Tilboð beggja aðila má sjá hér að neðan en tilboð Wow Air eru safaríkari. Ekki aðeins fæst flug niður í tæpar níu þúsund krónur aðra leið heldur og er hægt að ferðast strax í næsta mánuði vestur um haf. Hjá Icelandair miðast öll þeirra tilboð við að flogið sé eftir áramót í janúar eða febrúar og eru tímabundin. Með öðrum orðum þá verður að fljúga innan ákveðins tímaramma sem flugfélagið ákveður en ekki viðskiptavinurinn. Sem er töluvert dapurleg þjónusta árið 2015.









