Tíðindi

Fimmtán kall til Alicante til miðnættis með Wow Air

  21/05/2012desember 25th, 2013No Comments

Einhvers staðar stendur skrifað að þeir síðustu verða fyrstir. Það gæti átt við um þá aðila sem ekki stukku á hraðtilboð Icelandair til Alicante síðustu dagana en þar var önnur leiðin í boði á 29.900 krónur. Nú býður Wow Air til miðnættis tilboð til sama áfangastaðar á 14.900 krónur.

Til að gæta allrar sanngirni náði tilboð Icelandair, sem lauk í dag, til dagsetninga í júní og júlí eða háannatíma á Costa Blanca ströndinni. Tilboð Wow nú hins vegar gildir aðeins í ferðir í júní. Á móti kemur að verðmunurinn er verulegur eða heilar fimmtán þúsund krónur og það aðra leiðina.

Þá er franska borgin Lyon einnig á sams konar tilboði til miðnættis og gilda sömu reglur um; fljúga verður út í næsta mánuði.

Heimasíða Wow Air hér.