Tíðindi

Eurovision tilboð Iceland Express

  21/05/2012No Comments

Samkeppnin er yndisleg, ég geri það sem ég vil. Ekki fyrr er tilboðum eins flugfélags lokið en önnur koma í staðinn. Nú býður Iceland Express svokallað Eurovision tilboð til fimm evrópskra borga á ákveðnum dagsetningum.

Til eru fáránlegri hlutir en fara úr að ofan og sökkva sér í heimsbókmenntirnar á grasflötinni við þinghúsið í Berlín

Um er að ræða borgirnar Basel í Sviss, Köln og Berlín í Þýskalandi, London og Gautaborg eða gott bland í poka. Önnur til leiðin með sköttum og gjöldum til allra staða nema Basel kostar 14.900 krónur. Flug til Basel fæst á 19.900 krónur.

Tilboð þessi eru í boði til hádegis á morgun, þriðjudag 22. maí, og dekka gróft yfir flug í júní og aðeins inn í júlímánuð. Basel er þannig í boði frá 9. júní til 7. júlí, Gautaborg milli 6. júní og 4. júlí, London allan júní til 4. júlí og Berlín sömuleiðis og Köln frá 5. júní til 7. júlí.

Heimasíða Iceland Express hér.