Tíðindi

Meirihluti hlynntur að feitlagnir borgi meira

  21/05/2012No Comments

Hvorki fleiri né færri en 61 prósent landsmanna eru á þeirri skoðun að feitlagið fólk eigi að greiða hærra verð fyrir flugmiða en aðrir.

Stór meirihluti er á því að feitlagið fólk eigi að greiða hærra verð fyrir flugmiðann samkvæmt könnun Fararheill

Fararheill.is hefur um tveggja vikna skeið haldið úti vefkönnun um hvort feitlagnir eigi að greiða meira fyrir flugmiða en hinir sem ekki eru yfir kjörþyngd. Ritstjórn hefur áður fengið þær upplýsingar frá flugfélögunum Iceland Express, Icelandair og Wow Air að ekkert slíkt væri til skoðunar þó erlend flugfélög mörg skoði slík aukagjöld fyrir þá sem feitari eru.

Vefkönnun Fararheill sýnir svo ekki verður um villst að stór meirihluti vill að feitir greiði meira. 61 prósent eru á þeirri skoðun, 33 prósent segja slík alveg fráleitt og sex prósent taka ekki afstöðu til eða frá. Atkvæði greiddu 276.

Með tilliti til að Íslendingar eru með allra feitustu þjóðum Evrópu væri kannski ekki fráleitt fyrir flugfélögin að skoða þennan möguleika og í raun eðlilegt framhald þess að heimta aukagjöld fyrir farangur yfir ákveðnu marki.

Þetta er vitaskuld viðkvæmt mál fyrir marga en í sanngjörnum heimi er varla eðlilegt að 55 kíló manneskja greiði hátt aukagjald fyrir að fara aðeins yfir 20 kílóa takmarkið á farangursheimild meðan manneskja sem er yfir hundrað kíló og engan farangur getur sest í sætið við hliðina án þess að blikka auga.

Fararheill þakkar góða þátttöku en ítrekar að vefkannanir eru ekki vísindalegar á neinn hátt. Ber því að taka niðurstöðunum með fyrirvara.

Við þökkum góða þátttöku.