Tíðindi

Fengu 1.500 kall vegna verulegra tafa

  03/05/2011nóvember 27th, 2014No Comments

Eitt þúsund og fimm hundruð krónur er það sem þeir farþegar Iceland Express fengu frá flugfélaginu eftir að einni vél flugfélagsins var snúið við eftir flugtak á Keflavíkurflugvelli.

Kom upp þrýstingsvandamál í vélinni rétt eftir flugtak og ákváðu flugstjórar að snúa strax við öryggisins vegna.

Var farþegum smalað að nýju inn í Leifsstöð þar sem við tók veruleg bið en flugfélagið só þó aumur á farþegum og gaf hverjum og einum 1.500 krónur fyrir einhverju matarkyns.

Það vita þeir sem til þekkja að fyrir þá upphæð í Leifsstöð má fá tvær kaldar samlokur, þrjár litlar skyrdollur eða einn einasta bjór á barnum.