Tíðindi

Tilboðsdagur hjá Iceland Express

  03/05/2011No Comments

Flugfélagið Iceland Express býður í dag sérstök tilboðsverð til fjögurra áfangastaða sinna. Fást þannig miðar aðra leiðina til Berlínar, Kaupmannahafnar og London á 11.900 með sköttum og gjöldum og hins vegar flug til New York á 22.900 krónur.

Aðeins er um tímabundin tilboð að ræða og takmarkaður fjöldi sæti í boði á þessum kjörum flugfélagsins. Þá er reyndar sá hængur á að aðeins eru í boði ferðir fram til 31. maí.

Verður að gefa flugfélaginu plús í kladdann fyrir að bjóða slík sértilboð nú þegar líða fer að sumri og fjölmargir hugsa sér til hreyfings en hafa kannski lítil efni á. Hefðin er að verð hækki á þessum tíma.

Þá skal og hafa í huga að frá öllum þessum áfangastöðum í Evrópu fljúga lágfargjaldaflugfélög og því er möguleiki að komast langar vegalengdir fyrir lágmarks upphæðir.

Heimasíða Iceland Express hér.