Um fátt er annað talað í Bretaveldi og annars staðar hjá unnendum breska kóngafólksins en hvar brúðhjónin Vilhjálmur og Katrín hyggjast eyða hveitibrauðsdögunum.
Eðli málsins samkvæmt hvílir mikil leynd yfir þeim stað en þó hefur fregnast samkvæmt gulu pressunni bresku að um er að ræða fremur afskekkta eyju í Indlandshafi. Þar eiga aðeins að vera örfáir bústaðir en þó er hér allt til alls og fyrsta flokks þjónusta með.
Fjöldi slíkra staða koma til greina á Indlandshafinu en hægt er að takmarka hringinn töluvert fyrst aðeins eru þar þrjár eða fjórar íbúðir og hver þeirra nokkuð út af fyrir sig. Þá er staðurinn og það langt frá alfararleið að brúðhjónin fara í þyrlu frá næsta flugvellinum og mun það vera nokkur spotti.
Engin leið er vera viss en ýmsir vilja meina að staðurinn geti verið smáeyjan Île Ronde, Hringeyja, sem er ein eyjan í smáeyjuklasa norður af Mauritius eyju. Þar eru þrjár lúxusíbúðir með öllum hugsanlegum þægindum. Eyjan er í einkaeigu og varin af vopnuðum vörðum á bátum. Þá eru íbúðirnar leigðar út til vellauðugra einstaklinga og er vinsæl til brúðkaupsferða hjá þeim er vita ekki aura sinna tal.






