Það var og. Lágtvirt Evrópuráð, Council of Europe, mælir nú með að lækka til muna bætur til ferðalanga vegna tafa, aflýsinga og annars vesens hjá flugfélögum álfunnar.

Evrópuráðið vill gjarnan takmarka mjög rétt okkar til bóta vegna flugs.

Þetta eru fréttir hinar verstu fyrir almúgann í Evrópu og við þar meðtalin. Loks þegar við njótum raunverulegra kjarabóta þegar flugfélag sýnir okkur kúk og kanil þá telja spekingar í Evrópu best að draga feitt úr þeim bótum enda hart í ári hjá evrópskum flugfélögum.

Alas, það er ekkert hart í ári á neinum bæ í flugheimum. Þvert á móti er rífandi gangur hjá flugfélögum álfunnar og það jafnvel þó þau þurfi nú að punga duglega út þegar þau svína á okkur meðalplebbunum.

En mikill vill meira og í Evrópuráðinu eru greinilega veimiltítur og dusilmenni upp til hópa. Samkvæmt þessu skjali af nýlegum fundi ráðsins, hvers hlutverk er að EFLA OG VERJA MANNRÉTTINDI OG LÝÐRÆÐI svo fátt sé nefnt, er best að gera það með því að lækka sektir á flugfélög um heilan helling.

Samkvæmt skjalinu, sem nóta bene fer rakleitt á efstu staði í Evrópusambandinu þar sem lög þessa efnis taka gildi ef réttir aðilar fá seðla í hönd, geta flugfélögin seinkað flugi um allt að FIMM KLUKKUSTUNDUM án þess að við fáum rönd við reist eða bætur fyrir. Þegar þetta er skrifað er viðmiðið þrjár klukkustundir. Seinkanir umfram það og við eigum rétt á bótum hið snarasta.

Fleira gotterí finnst í skjalinu ef lesendur eru á mála hjá flugfélögum en taka ekki stöðu með fólkinu sínu. Verulega miður fyrir alla ef þetta kemst í gegn.