Okkur hér telst til að við höfum varað við hótelbókunarvefnum Booking.com svona sirka 25 sinnum síðustu árin. Tveir aðilar sem ekki lesa Fararheill súpa nú seyðið af viðskiptum við þetta fyrirtæki.

Afar vafasamt fyrirtæki en því miður lesa fáir Fararheill til að vita allt um málið

Mest lesna frétt á vef mbl í gær fjallaði um þrenn pör sem höfðu neglt gistingu á hótelum í Rússlandi í sumar yfir HM gegnum vef Booking.com aðeins til að fá spark í rassinn skömmu síðar. Þá frétt má lesa hér.

Í sjálfu sér kemur ekki á óvart að eigendur hótela og gististaða í Rússlandi sjái sæng sína útbreidda nú þegar eftirspurn er meiri en framboð í hinum ýmsu borgum landsins þar sem heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu fer fram eftir rösklega tvo mánuði. Það er eðli viðskipta að hámarka gróðann og ef það kostar að einhver verði fúll á Fróni eða annars staðar, þá verður bara að hafa það. Ekki hvað síst í annars fátæku landi sem er kjaftfullt af tækifærissinnum. Svona gósentíð kemur jú bara einu sinni.

Ein stjarna af fimm mögulegum. Það er stínker-lélegt í öllum skilningi. Skjáskot

Slíkt háttalag hreint ekki einskorðað við Rússland. Við hér þekkjum dæmi um íslenska gististaði sem hafa brúkað sömu trix þegar eftirspurn reyndist mun meiri en menn áttu von á. Nefnum engin nöfn en það sýnir að það er oft græðgi sem ræður för en ekki góð þjónusta við viðskiptavini.

Að því sögðu liggur sökin, að okkar mati, meira hjá bókunarvefnum Booking, en hjá þeim hótelum sem greint er frá í fréttinni. Það engar fréttir fyrir lesendur okkar að þjónusta Booking sé minni en engin en það er töluverð frétt að fyrirtækið harðneiti að gera nokkuð fyrir þá viðskiptavini sem hent er út á guð og gadd sísona.

En í því felst líka trixið. Það er svo fjári flókið og erfitt að ná tali af nokkrum kjafti í risafyrirtækinu Booking að þegar og ef eitthvað bjátar á, þá eru hæg heimatökin að senda fólk milli deilda og landa án þess að það fái nokkurn tíma bót meina eða aðstoð af neinu tagi. Fólk gefst eðlilega upp enda feitur kostnaður sem fylgir því að hringja hingað og þangað til þess eins að fá „sorrí Stína.“

Hér skiptir líka töluverðu máli að Booking heimtar töluvert hærri þóknun af hótelum og gististöðum en flestir aðrir slíkir vefir gera eða frá 15% til 24% af verði gistingar. Eða hvers vegna heldur þú að helstu flugfélög heims og öll þau íslensku séu á mála hjá Booking? Góð þjónusta kannski? Neibbs. Þau fá bara meira í sinn hlut þegar Jón og Gulla bóka herbergið erlendis. Græðgin toppar vinsamlegheit og þjónustu við viðskiptavininn.

Aðrir aðilar taka gjarnan þetta 6% til 10% per bókun. Gistihúsaeigandi sem fær vikubókun frá Booking sparar sér þúsundir króna á því að taka bókun annars staðar frá á sama tíma. Það munar um slíkt á þeim harða markaði sem gisting er víðast hvar.

Svo ekkert sé nú minnst á að móðurfélag Booking, Booking Holdings, geymir tugmilljarða króna á aflandseyjum til að þurfa nú ekki að greiða sent í skatta þrátt fyrir gríðarlegan hagnað ár eftir ár.

Einstaklega smekklegt fyrirtæki… ekki