Stundum eru reglur til að brjóta þær. Sem hefði verið æði vænlegt fyrir flugfélagið Icelandair þegar sérhannaður rafdrifinn hjólastóll fyrir fatlaðan einstakling mölbrotnaði í meðförum flugfélagsins. Flugfélagið neitar að greiða nema brotabrot af kostnaði stólsins.

Milljóna króna sérhannaður hjólastóll í molum í meðförum Icelandair. En skítabætur…
Hér ekki verið að tala um næsta hjólastól heldur sérstaklega hannaðan rafknúinn stól fyrir mjög fatlaðan einstakling sem ferðaðist með Icelandair nýlega. Stól sem eigandinn metur á tæpar fjórar milljónir króna.
Flutningurinn gekk ekki betur en svo að stólinn var mölbrotinn við komu eins og sést á meðfylgjandi mynd. Eðlilega var óskað eftir bótum umsvifalaust enda getur viðkomandi einstaklingur ekki komist eitt né neitt án þessa sérhannaða stóls vegna fötlunar.
En nei. Icelandair býður aðeins hámarksbætur fyrir skemmdan farangur sem reynist vera um 206 þúsund krónur eða um fimm prósent af andvirði hjólastólsins.
Ok, hér má vel vera að flugfélagið sé að borga hámarksbætur. En er ekki mál að líta í barm þegar þær bætur eru svínslega lágar miðað við verðmæti þess sem flutt er. Það er jú ekki eins og Icelandair sé ekki tryggt í bak og fyrir og fái stóran, ef ekki allan, slíkan kostnað endurgreiddan. Svo var jú forstjóri Icelandair að fá fálkaorðu fyrir fádæma riddaraskap…
En nei. Stöndum hart á okkar og leyfum sárfötluðum einstaklingi í Bretlandi að finna út úr þessu vandamáli.
Sem ætti að segja öllum sem ferðast með farangur hvers verðmæti er hærra en 206 þúsund krónur að sleppa því að fljúga með Icelandair.
Nánar hér.
UPPFÆRT KL. 23:45
Icelandair hefur ákveðið að greiða umræddan stól að fullu. Í frétt mbl um málið er talað um hið „miskunnarsama“ flugfélag!!! Sem kallast öfugmæli á góðri íslensku. Flugfélagið hafnaði bótakröfum þangað til fréttin komst í hámæli. Það kallast að bjarga því sem bjargað verður. Miskunnsemi hefði falist í því að átta sig strax á alvarleika málsins og greiða úr áður en hundruðir níddu orðspor flugfélagsins á samfélagsmiðlum. Viðskipti 101.







