R éttar þrjú þúsund krónur takk fyrir. Það er verðmunurinn á að kaupa karton af vinsælum sígarettum um borð í vélum Wow Air annars vegar og að kaupa sama karton í næstu verslun á Kanaríeyjum.

Tóbak á Kanarí 370% ódýrara en á Íslandi.
Þetta vita allir þeir sem reykja og elska eyjurnar sem kenndar eru við Kanarí. En kannski ekki þeir sem eru að fara fyrsta sinni eða hafa ekki farið lengi.
Lágmarksverð á tóbakskartoni í vélum Wow Air er 5.800 krónur eða nokkuð á pari við það sem kartonið kostar í fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli. Hjá Icelandair kostar tóbakið aðeins meira.
En í næstu verslun á Kanarí, Tenerife, Lanzarote eða Fuerteventura fæst karton af vinsælum tegundum gjarnan niður í 20 evrur. Sem eru 2.800 krónur miðað við gengi dagsins. Sem sagt 370% ódýrara per pakka en tóbak kostar út úr búð heima á Íslandi.
Að sama skapi er ráð að kaupa karton úti í verslun áður en haldið er út á völl á Kanaríeyjum. Tóbakið í fríhöfninni þar einnig dýrara en í hefðbundnum tóbaksverslunum. Sama gildir um vindla.







