Óhætt að blása í litla blöðru ef svo vill til að þú átt bókað flug með Icelandair til Glasgow þann 12. ágúst. Fluginu hefur nefninlega seinkað verulega og sterkar líkur á að þú eigir brátt inni 33 þúsund krónur hjá flugfélaginu.

Stutt í ágætar skaðabætur fyrir farþega til Glasgow með Icelandair
Samkvæmt takmörkuðum upplýsingum hefur flugi Icelandair til Denver í Bandaríkjunum seinkað nokkuð vegna „veðurs“ að því er fram kemur á vef flugfélagsins. Það út af fyrir sig vekur upp spurningar því ekki er stafur að veðri í Denver samkvæmt veðurathugunarstöðvum á vefnum. Skýjað og einhver úrkoma en það virðist nægja til að flugi Icelandair til borgarinnar var beint til Minneapolis um tíma.
Merkilegt nokk virðist sú töf hafa áhrif á flug Icelandair til Glasgow þann 12. ágúst þó um allt aðra vél sé að ræða. Miðað við upplýsingar á vef Keflavíkurflugvallar fer vélin til Glasgow í loftið klukkan 10 í stað þess að fljúga 07:35 eins og áætlun hljóðaði upp á.
Að því gefnu að Icelandair hefur oftar en einu sinni og oftar en tvisvar vanáætlað tafir fram í tímann er óhætt að benda farþegum á að aðeins þarf hálftíma seinkun umfram auglýst plan til að menn og mýs í vélinni detti í skaðabótapakkann.
Sem merkir að ef lent er í Glasgow þremur klukkustundum eftir auglýstan lendingartíma eiga farþegar inni 33 þúsund krónur eða svo samkvæmt Evrópureglum.
Ágætt að vita ef hugmyndin er að versla eins og það sé 1999 🙂







