Það getur vel verið að fólk fljúgi vel með Icelandair. En að vélar þeirra séu stundvísar er allt annar handleggur!

Ritstjórn Fararheill hefur veitt því athygli að undanförnu að töluvert vantar upp á að brottfarir véla Icelandair frá Keflavík séu í takt við áætlanir. Sök sér að stöku vél sé aðeins á eftir áætlun; við því er að búast á annatíma. Allt annað að allar vélar félagsins séu langt á eftir fyrir utan eina eins og sjá má á meðfylgjandi töflu frá Keflavíkurflugvelli:

iceseinkÞarna má sjá að fyrir utan eina brottför er ENGIN vél Icelandair að fara í loftið á réttum tíma. Þær eru flestar fimmtán til tuttugu mínútum of seinar af stað og sumar lengur en það.

Ráð væri, af hálfu Icelandair, ef þetta er raunin, að hætta að gefa upp nákvæman brottfarartíma á flugferðum. Nær lagi að sirka hlutina. Til dæmis eins og að segja að vél FI245 fer frá Keflavík kringum átta-leytið. Þá er enginn hissa ef vélardruslan fer ekki í loftið fyrr en eina mínútu í átta…

Hitt svo kannski betra að laga þetta bara en miðað við hve illa gengur að laga þjónustu flugfélagsins er sennilega borin von að laga stundvísina.