Hver hefði trúað því að þetta illgjarna skítapakk á ritstjórn Fararheill finndi til í hjartanu þegar flugfélag milljarðamærings brotlendir með brauki og bramli einn slæman veðurdag?

Vélar með þessar merkingar munu ekki sjást lengur í lofti eða á láði. Það er miður.
Ömurlegar fréttir í morgunsárið þennan daginn. Wow Air í þrot og á svipstundu störf þúsunda einstaklinga farin veg allrar veraldar.
Óvænt? Neibbs. Sorglegt? Jábbs.
Kúdos á Mogensen
Margt má segja um Skúla Mogensen sem henti milljörðum sínum í stofnun Wow Air á sínum tíma þvert á ráðleggingar spekinga. Engin spurning um gáfur og dirfsku kappans og hægt er að færa góð rök fyrir að það hafi verið hann og hans flugfélag sem jók ferðamannastraum til landsins um allan helming með fargjöldum sem oft á tíðum voru helmingur þess sem Icelandair heimtaði og þjónustan var um tíma töluvert betri en gamla fólkið hjá Icelandair veitti okkur.
Engin spurning heldur að samkeppnin kveikti eld undir buxum Icelandair sem fram að því var beisik flugfélag sem gerði ekkert spes og lifði eingöngu vegna fjármagns frá lífeyrissjóðum landsmanna. Sama Icelandair og missti 100 prósent forskot niður í núll gagnvart Wow Air á fjórum árum sléttum. Stjórn Icelandair gæti gert töluvert heimskulegri hluti en ráða herra Mogensen í forstjórastól í stað þessa þurra og frosna bókhaldara Boga Nils Bogasonar.
Skúli snilli en samt ekki
Því miður hlustaði herra Mogensen ekki á viðvörunarraddir þegar veislan stóð sem hæst. Þvert á móti eiginlega, hann losaði sig við alla yfirmenn sem ekki sögðu já og amen við hans eigin hugmyndum um bullandi sókn í allar áttir. Í stað þess að ná raunverulegum fjárhagslegum vindi í seglin áður en haldið væri enn lengra á framabraut þegar kampavínið flaut í hverri veislunni á fætur annarri 2016 og 2017, hélt kauði áfram að kynna nýja áfangastaði hraðar en Engeyjarættin græddi peninga. Mogensen tók, með öðrum orðum, sama pól í hæðina og forráðamenn Kaupþings 2008. Fokk it, við trillum og tjillum bara áfram eins og enginn sé morgundagurinn.
Græðgin fór með Wow Air
Við höfum áður bent á að það sem fer upp, kemur niður. Ekki okkar orð heldur beisik eðlisfræði sem gildir jú sannarlega um gengi fyrirtækja um heim allan. Engin atvinnugrein í mannkynssögunni hefur verið á húrrandi uppleið alla daga ársins.
Það aldeilis makalaust að Wow Air, á hátindinum 2016 með svo mikið af seðlum í hirslum að herra Mogensen tók sundsprett í peningum að hætti Jóakims Aðalandar, í stað þess að styrkja grunninn og byggja hægt og bítandi til framtíðar var ákvörðun tekin um enn meiri umsvif og útlát. Kynntir voru nýir áfangastaðir hraðar en KFC afgreiðir kjúklingabita.
Ókei, fræðilega ekki ómögulegt að slík ofurútrás gangi upp. En til þess þarf allt, og þá meinum við ALLT, að ganga 100 prósent upp. Og hugsanlegt snarhækkandi olíuverð vegna fífls í Hvíta húsinu gleymdist alveg.
Sólin kemur aftur upp
Samkeppni er ALLTAF af hinu góða. Nú ætlum við og vonandi aðrir fjölmiðlar, að fylgjast grannt með að Icelandair og önnur flugfélög sem þjónusta Ísland hækki ekki fargjöld von úr viti eins og búast má við. Enginn skyldi draga í efa að eftir ár eða tvö verður Wow Air fjarlæg minning og aðrir fyllt það skarð sem Wow Air skilur eftir sig. Þá verða vonandi allir þeir sem misstu störf sín nú komnir í nýja, skemmtilega vinnu 🙂







