Hugsa sér að íslenskur fjölmiðill hefði mögulega getað komist í heimsfréttirnar fyrir tveimur vikum með því að fylgja ráðum okkar hér. Þess í stað bætir New York Times enn einni rós í hnappagatið…

Flugstjórnarklefi Max-8 véla Boeing. Ekki allir með allt á hreinu þar.
Mest lesna frétt bandaríska stórblaðsins New York Times í gær reyndist vera þessi grein hér. Þar greinir NYT frá því að flugmenn sem sendir voru í flughermi Boeing Max 8 vélar og fengu þar nákvæmlega sömu upplifun og flugmenn indónesíska flugfélagsins Lion Air, hvers Boeing Max-8 vél hrapaði í hafið skömmu eftir flugtak á síðasta ári með hörmulegum afleiðingum, höfðu sekúndur til að átta sig á vandanum.
Niðurstaðan sú að flugmenn Lion Air, sem höfðu enga hugmynd um að tiltekinn tölvubúnaður tæki yfir stjórn vélarinnar við tilteknar aðstæður, höfðu aðeins 40 SEKÚNDUR til að finna út úr vandamálinu og leysa það.
40 SEKÚNDUR!!!
Sök sér að hafa aðeins 40 sekúndur í dúlleríi í flughermi á jörðu niðri með rjúkandi kaffi og kleinur bíðandi í matsalnum og engin mannslíf í hættu. Öllu alvarlegra að hafa 40 sekúndur til að bjarga rellunni og hundruðum farþega frá bráðum dauða án þess að hafa hugmynd um hvert vandamálið sé eins og flugmenn Lion Air þurftu að eiga við og fundu, illu heilli, ekki lausn á í tæka tíð.
Fyrir tveimur vikum bentum við innlendum fjölmiðlum á að það væri nú dálítið sniðugt að senda flugmenn í Boeing-Max flughermi og kanna viðbrögðin við svipuðum aðstæðum og flugmenn Lion Air þurftu að glíma við á sínum tíma. Slíkt væri forvitnilegt fyrir fréttafólkið, lesendur, flugáhugafólk og mögulega alla þá sem ætla í framtíðinni að fljúga Boeing Max vélunum.
En neibbs. Engin gerði tilraun til þess þó fullkominn Max-8 flughermir sé staðsettur í Hafnarfirðinum og Icelandair vafalaust til í slíka tilraun.
Einhver hjá New York Times hins vegar las grein okkar og úr varð mest lesna grein þess blaðs þann daginn…







