Hólí mólí hvað tímaritið Frjáls verslun og markaðsfólk á Íslandi hafa veðjað á ranga hesta um langa hríð. Kannski ráð að senda gengið í gúlagið í Síberíu sem allra fyrst.

Verðlaun á verðlaun ofan. Nema kauði var að missa fyrirtækið sitt. Mynd Airbus
Hvers vegna minnumst við á Frjálsa verslun og ÍMARK? Jú, það er eitt það tímarit sem hefur um langa hríð gert sig óvenju breitt á innlendum mælikvarða. Svo breitt að tímaritið útnefnir mann ársins, viðskiptamann ársins og whatnot, og allir aðrir fjölmiðlar lepja það upp eins og hundur lepur dauða úr skel. Sömuleiðis þykja ákvarðanir markaðsfólks megamikilvæg tíðindi í fjölmiðlum landsins.
En hversu gáfulegir eru þessir súpergáfuðu spekingar?
Frjáls verslun velur Andra Má mann ársins. – Hahaha, sami Andri Már og setti eitt stykki flugfélag á hausinn ÞRÁTT fyrir að slefa að greiða starfsfólki lægstu laun sem finnast í Evrópu. Samt maður ársins hjá Frjálsri verslun.
Sigurður maður ársins – Hahahah, stjórnarformaður Icelandair, þegar flugfélagið gat ekki haldið ljósi á kerti meðan glænýtt flugfélag, Wow Air, rúllaði framúr án þess að blása úr nös, er brandari út í eitt. Siggi karlinn hafði vit á því að láta sig hverfa þegar hlutabréfaverð Icelandair féll jafnt og þétt þrátt fyrir mestu ferðamannasprengju á Íslandi.
Skúli Mogensen er markaðsmaður ársins – Hahaha. Þvílíkur markaðsmaður að þremur mánuðum eftir verðlaunin er fyrirtæki hans farið veg allrar veraldar.
Og þetta snýst ekki aðeins um ÍMARK og Frjálsa verslun. Aðrir eru líka sekir um tómt rugl og þvælu:
Skúli valinn viðskiptamaður ársins – Íhugar starfsstöð utan Íslands – Hahaha. Allt gekk þetta eftir (not.)







