Enn á ný er sprottin upp erlendis umræða um hversu mikið mark er takandi á stjörnugjöfum ferðalanga á vinsælum ferðavefum á borð við Tripadvisor. Tæp tvö ár eru síðan rekstraraðilar tóku stjörnugjöfina til gagngerrar endurskoðunar eftir að upp komst um veruleg og víðtæk svindl. Fáir eru þó sannfærðir.
Á Tripadvisor, sem er vinsælasti ferðavefum heims, getur hver sem er lagt inn sitt álit á hótelum alls staðar í heiminum og gefið einkunn frá einum og upp í fimm. Fræðilega séð er þetta frábær aðferð því þannig fá ferðalangar ráð frá öðrum ferðalöngum og þau hótel sem fá lélega dóma hvað eftir annað hysja upp um sig buxurnar ella fara á hausinn.
Á hinn bóginn hefur verulega aukist að þau hótel sem ítrekað fá toppeinkunn hafa mjög hækkað verð sín og þannig stórgrætt á öllu saman.
Öllu verst er þó að hóteleigendur margir gerðu það að leik sínum um margra ára skeið að gefa sínum eigin hótelum toppeinkunn og létu jafnvel starfsmenn sína leika sama leik. Þá varð einnig vart við marga eigendur sem sendu starfsfólk út af örkinni til að gefa keppinautum sínum falleinkunn.
En jafnvel þó allt væri satt og rétt sem sagt er og skrifað um hótelin á Tripadvisor er alls ekki þar með sagt að það hjálpi öðrum ferðalöngum. Það er samdóma álit ferðaþjónustuaðila að Bandaríkjamenn almennt hafa minni þolinmæði varðandi þjónustu en Evrópubúar. Að sama skapi fara lítil hótelherbergi einnig líka minna í taugarnar á Evrópubúum og Asíubúum. Ólíklegt er að franskir ferðamenn hafi sama smekk á mat og þjónustu og Tyrkir eða Rússar. Svo má lengi telja.
Þegar upp er staðið er sennilega ágætt að skoða Tripadvisor en hafa í huga að það sem þar er skrifað er engan veginn heilagur sannleikur.






