Flugvélar Iceland Express munu eftirleiðis fljúga einni til tveimur klukkustundum síðar af stað frá Keflavíkurflugvelli en hingað til hefur verið. Skulu þeir farþegar sem eiga pantað með flugfélaginu hafa þetta í huga.
Er verið að koma til móts við óskir stjórnenda vallarins en framundan er mesta álag á völlinn frá upphafi og tilfærslur á borð við þessa í raun til að koma í veg fyrir örtröð snemma á morgnana.
Fara þannig allar vélar IE um klukkan átta eða níu á morgnana í stað sjö nú.
Er þetta hið besta mál enda telja margir eftir sér að vakna milli fjögur og fimm dimma morgna til að ná vél frá Keflavík klukkan sjö.






