Tíðindi

Enn ein rósin í hnappagat Emirates

  06/03/2011nóvember 23rd, 2014No Comments

Flugfélagið Emirates bætti enn einni rósinni í hnappagatið í vikunni þegar skoðanakönnun meðal 1200 flugfarþega á vegum Skyscanner leiddi í ljós að það flugfélag býður besta matinn um borð.

Alas, það þarf nú sennilega engin ósköp til því flugvélamatur yfir höfuð hefur aldrei þótt sérstaklega lystugur. Það leysa Emirates menn á tvenns konar hátt. Annars vegar er gæðaeftirlit flugfélagsins afar hart og það á ekki viðskipti við neitt fyrirtæki sem ekki er fyrsta flokks.

Hins vegar býður flugfélagið upp á fjóra mismunandi heita rétti í lengri flugum sínum þannig að farþegum finnst þeir næstum komnir á veitingahús.

Ritstjórn hefur reynslu af flugi með Emirates og getur tekið undir að gott er að hafa val og ekki síður er alveg ágætt að greiða ekki aukalega fyrir eitthvað matarkyns eins og raunin er hjá vestrænum flugfélögum. Hið sama gildir um vín eða aðra drykki. Þeir eru fríir.

Listinn í heild sinni:

  1. Emirates
  2. Lufthansa
  3. Singapore Airlines
  4. Aeroflot
  5. Qatar Airways
  6. Malaysia Airlines
  7. Thai Airways
  8. Ethidad
  9. KLM
  10. Air France