Einn af hverjum tíu ferðalöngum lendir í vandræðum á flugvellinum sökum þess að vegabréf er útrunnið eða skammt eftir af gildistíma þess.
Þetta er niðurstaða könnunar í Bretlandi á orsökum þess hvers vegna ferðamönnum er meinað að fljúga. Hlýtur það að vera ein versta upplifun á flugvelli á leið í frí að uppgötva að vegabréfið er útrunnið en ekki síður falla margir í þá gryfju að halda að vegabréf gildi fram á síðasta dag. Það þarf alls ekki að vera þannig og reyndar gera margar þjóðir kröfu um að vegabréf gildi að minnsta kosti sex mánuði fram í tímann við komu.
Þetta reyndar sleppur fyrir Íslendinga á ferð innan Schengen svæðisins enda eigum við strangt til tekið ekki að þurfa vegabréf. En til annarra landa skal gæta þess að vegabréf séu í gildi vel fram í tímann.






