Fyrir utan torgin glæsilegu eru það helst tvær götur í Barcelóna hvers frægð hefur borist um heim allan. Annars vegar La Rambla auðvitað og hin er Passeig de Gràcia sem státar af stórkostlegum byggingum, fyrirtaks stemmningu og síðast en ekki síst fyrsta flokks verslunum.
Þar eru staðsettar svo einhverjar séu nefndar tískuverslanir Gucci og Chanel og ekki lítill íburður þar á bæ.
Þær falla hins vegar dálítið í skuggann á nýjustu versluninni sem þarna hefur opnað. Prada opnaði sína fyrstu verslun í borginni fyrir skömmu og það enga skítaholu. Heimsþekktur arkitekt hannaði hvern kima þeirra 16oo fermetra sem um ræðir og ekki þarf að spyrja að því að svartur marmari og speglar úr smiðjum þekktustu hönnuða koma mikið við sögu.
Alveg ástæða til að skoða ef fólk á leið hjá þó ekki sé verslað mikið enda verðlag í Prada kannski aðeins yfir því sem lýðurinn hefur til brúks til fatakaupa.








