Nei, hér er aldeilis ekki verið að tala um súkkulaðifyrirtækið í Hafnarfirði heldur Góa fylkið á Indlandi. Þar er hægt að eyða tveimur vikum fram að jólum í endalausri sól og sælu og það í ermalausum bol með öllu inniföldu fyrir 137 þúsund krónur á mann. Plús flug til og frá London.

Í Góa er líka gott að djamma og djúsa...

Í Góa er líka gott að djamma og djúsa…

Þó við bætist 60 kallinn á parið til London og heim er þetta barasta samt dásamlega ódýr ferð sem breska ferðaskrifstofan My Holiday Experience er að bjóða þessa stundina.

Til samanburðar er Úrval Útsýn nú að auglýsa „frábært“ verð á tveggja vikna ferð sinni til Tælands. Verðið frábæra er 449.800 á mann miðað við tvo eða 899.600 samtals. Þvílík nauðgun á orðinu „frábært.“

Hraðar hendur þarf að hafa því brottför er 6. desember og komið aftur til London þann 20. desember. Sem er tær snilld ef fólk bætir við einum degi eða svo, verslar jólagjafirnar eða slafrar í sig jólaglögg á mörkuðum og koma svo heim sólbrún, sælleg og búin að gera allt nema elda jólamatinn.

Næs!

Tilboðið hér.