Sífellt stærri hluti Fréttablaðsins fer undir auglýsingar frá eigendum þess 365 Miðlum og ein heilsíða í helgarblaðinu nú er lögð undir nýja hótelbókunarþjónustu fyrir vildarvini Stöðvar 2. Skemmst er frá að segja að sú hótelbókunarvél stenst engan samanburð við það sem Fararheill býður.
Samkvæmt auglýsingunni er hægt að fá fjórar nætur á Grand Hotel í Kaupmannahöfn 19. til 23. febrúar næstkomandi fyrir 83.700 krónur en til að fá það fína verð skal fólk fyrst skrá sig í sérstakan vildarklúbb.
Á því er bara alls engin þörf því hótelbókunarvél Fararheill.is pakkar þessu tilboði Stöðvar 2 saman eins og sjá má að neðan. Þar finnum við gistingu sama tíma á sama hóteli fyrir lægst 62.528 krónur. Það er vel rúmlega 20 þúsund krónum lægra verð og enginn þarf að skrá sig eitt né neitt. Við reyndum finnum allmörg betri tilboð en það sem Stöð 2 auglýsir sem mest og best.
En ekki taka bara okkur orð fyrir því. Leitið sjálf…








