Alltaf nýjungar í boði hjá Wow Air. Flugfélagið tekur upp á því að loka vef sínum á miðjum degi vegna viðhalds.
Vefur Wow hefur verið niðri um hríð í dag og er niðri þegar þetta er skrifað.
Sem er hið undarlegasta mál því fyrirtæki eru ekki vön að láta framkvæma viðhaldsvinnu á þessum tíma sólarhringsins. Væri ekki nær lagi að gera þetta að næturlagi kannski svo viðskiptavinir þurfi ekki að bíða? En kannski er lítil traffík seinnipart dags.
UPPFÆRT: vefur Wow kominn upp að nýju.








